15.12.1966
Sameinað þing: 17. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í B-deild Alþingistíðinda. (134)

1. mál, fjárlög 1967

Forseti (BF):

Þar sem mótmælt hefur verið þeim úrskurði, að hv. 3. þm. Vestf., Sigurvin Einarsson, gæti ekki greitt atkv. í þessu máli, leyfi ég mér að bera úrskurðinn undir atkv. Ég vil geta þess, áður en atkvgr. fer fram, að úrskurður forseta byggist að sjálfsögðu á þeim upplýsingum, sem ég tel mig hafa, að þarna sé um bændakirkju að ræða og eign ábúandans eða eigandans á Saurbæ á Rauðasandi.