21.02.1967
Neðri deild: 44. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1522 í B-deild Alþingistíðinda. (1352)
65. mál, löggilding á verslunarstað í Egilstaðarkauptúni
Frsm. (Björn Fr. Björnsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., fer fram á það, að löggiltur verði verzlunarstaður í Egilsstaðakauptúni í Suður-Múlasýslu. Frv. er borið fram af öllum þm. Austfjarðakjördæmis og enn fremur landsk. þm. þaðan, og hreppsnefnd Egilsstaðahrepps hefur einróma samþ. að taka þennan hátt upp. Allshn. hefur athugað þetta mál og rætt sín á milli og telur ekkert við það að athuga, að það nái fram að ganga. Þetta kauptún, Egilsstaðakauptún í Suður-Múlasýslu, er vaxandi að mannfjölda og er miðstöð samgangna á Austurlandi eða á Fljótsdalshéraði, og hreppsnefndinni þykir eðlilegt, að þarna verði löggiltur verzlunarstaður og telur það verða til hagsbóta fólki þarna og staðnum í heild. Eins og ég sagði, hafði allshn. ekkert við þetta mál að athuga og leggur einróma til, að það verði samþ.