06.04.1967
Neðri deild: 59. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1535 í B-deild Alþingistíðinda. (1416)

153. mál, sala níu jarða og grasbýla í Neshreppi utan Ennis og Lækjardals í Öxarfjarðarhreppi

Flm. (Sigurður Ágústsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. landbn. fyrir jákvæða afgreiðslu hennar á frv. á þskj. 301, og að sjálfsögðu geri ég ráð fyrir, að samþykkt fáist fyrir þeirri brtt., sem hv. 3. þm. Norðurl. e. hefur borið hér fram og sem hann hefur tekið aftur til 3. umr. til að tefja ekki málið. Ég vil biðja hæstv. forseta að flýta málinu, þannig að það verði tekið á dagskrá helzt á morgun eða ekki síðar en á laugardag.