11.04.1967
Sameinað þing: 33. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1567 í B-deild Alþingistíðinda. (1555)

Almennar stjórnmálaumræður

Forseti (BF):

Umræðan fer þannig fram í kvöld, að hver flokkur fær til umráða 50 mín. ræðutíma, er skiptist í tvær umferðir, 25–30 mín. hin fyrri og 20–25 mín. hin síðari. Röð flokkanna í báðum umferðum verður þessi: Alþb., Sjálfstfl., Framsfl. og Alþfl. Ræðumenn verða fyrir Alþb. í fyrri umferð Lúðvík Jósefsson, í síðari umferð Geir Gunnarsson og Björn Jónsson, fyrir Sjálfstfl. í fyrri umferð Bjarni Benediktsson, í síðari umferð Ingólfur Jónsson, fyrir Framsfl. í fyrri umferð Eysteinn Jónsson og Ingvar Gíslason, í síðari umferð Jón Skaftason og Gísli Guðmundsson, fyrir Alþfl. í fyrri umferð Emil Jónsson og Eggert G. Þorsteinsson og í síðari umferð Birgir Finnsson og Sigurður Ingimundarson.

Hefst nú umr. og tekur fyrstur til máls Lúðvík Jósefsson og talar af hálfu Alþb.