13.04.1967
Sameinað þing: 36. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1637 í B-deild Alþingistíðinda. (1570)

Almennar stjórnmálaumræður

Forseti (BF):

Umræðan fer þannig fram í kvöld, að hver þingflokkur fær 55 mínútna ræðutíma, sem skiptist í þrjár umferðir, 25 mín. í 1. umferð, 20 mín. í 2. umferð og 10 mín. í 3. umferð. Röð flokkanna í öllum umferðum verður þessi: Alþb., Sjálfstfl., Alþfl. og Framsfl. Ræðumenn verða fyrir Alþb. í 1. umferð Hannibal Valdimarsson, 5. þm. Vestf., í 2. umferð Eðvarð Sigurðsson, 3. landsk. þm. og Ragnar Arnalds, 5. landsk. þm., og í 3. umferð Gils Guðmundsson, 5. þm. Reykn. Fyrir Sjálfstfl. í 1. umferð Jónas Pétursson, 3. þm. Austf., og Sverrir Júlíusson, 6. landsk. þm., í 2, umferð Jóhann Hafstein dómsmrh. og í 3. umferð Magnús Jónsson fjmrh. Fyrir Alþfl. í 1. umferð Gylfi Þ. Gíslason menntmrh. og Friðjón Skarphéðinsson, 9. landsk. þm., í 2. umferð Jón Þorsteinsson, 4. landsk. þm., og í 3. umferð Benedikt Gröndal, 5. þm. Vesturl. Fyrir Framsfl. í 1. umferð Ólafur Jóhannesson, 3. þm. Norðurl. v., og Ágúst Þorvaldsson, 2. þm. Sunnl., í 2. umferð Halldór E. Sigurðsson, 3. þm. Vesturl., og í 3. umferð Þórarinn Þórarinsson, 5. þm. Reykv.

Hefst nú umr. og tekur fyrstur til máls hv. 5. þm. Vestf., Hannibal Valdimarsson, og talar af hálfu Alþb.