01.11.1966
Neðri deild: 10. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1848 í B-deild Alþingistíðinda. (1616)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Mér var ekki kunnugt um þetta mál fyrr en ég las um það í blöðum í morgun. Ég tel mig hvorki hafa rétt né skyldu til afskipta af því, hvernig háskólaráð eða háskólarektor ráðstafa húsnæði háskólans. Þess vegna er það í fullu samræmi við fyrri venju um þetta, að um þetta mál voru engin samráð höfð við mig. Það hefur heldur ekki átt sér stað áður, þegar húsnæði háskólans hefur verið ráðstafað eða lánað aðilum utan háskólans. Ég tel hins vegar sjálfsagt, að háskólinn fylgi föstum reglum eða einhverri fastri reglu varðandi það, hvaða aðilum og undir hvaða kringumstæðum háskólayfirvöld leyfa öðrum aðilum eða aðilum innan háskólans afnot af húsnæði hans. En vegna þessarar fsp. skal ég með ánægju ræða þetta mál við vararektor, skýra honum frá þessari fsp. og ræða málið almennt við hann.