18.04.1967
Efri deild: 73. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1871 í B-deild Alþingistíðinda. (1676)

Starfslok deilda

Forseti (SÓÓ):

Ég þakka hv. 1. þm. Norðurl. e. fyrir hlý og góð orð í minn garð og minnar fjölskyldu og þakka honum hans heillaóskir mér til handa. Ég þakka einnig hv. þdm. fyrir það að taka undir þessar óskir hans til mín og fjölskyldu minnar. Svo vil ég endurtaka það, að ég óska ykkur öllum, hv. þdm., gleðilegs sumars og góðs gengis í framtíðinni.