18.04.1967
Neðri deild: 73. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1871 í B-deild Alþingistíðinda. (1677)

Starfslok deilda

forseti (SB):

Þar sem þetta verður væntanlega síðasti fundur hv. þd. að þessu sinni, leyfi ég mér að þakka öllum hv. þdm. góða og drengilega samvinnu við mig sem forseta á liðnum vetri og því kjörtímabili, sem nú er á þrotum. Jafnframt leyfi ég mér að óska hv. þdm. og fjölskyldum þeirra alls velfarnaðar. Utanbæjarþm. óska ég góðrar heimferðar og heimkomu. Að lokum vil ég óska öllum hv. þdm. gleðilegs sumars, árs og friðar.