18.04.1967
Neðri deild: 73. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1871 í B-deild Alþingistíðinda. (1678)

Starfslok deilda

Lúðvík Jósefsson:

Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir í okkar garð. Ég vil þakka honum fyrir gott samstarf við okkur þm. og góða og röggsamlega fundarstjórn. Ég vil óska honum og fjölskyldu hans gleðilegs og góðs sumars og bið hv. þm. um að taka undir óskir mínar til forseta með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]