14.03.1967
Neðri deild: 54. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í C-deild Alþingistíðinda. (1699)

10. mál, áfengislög

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Þann 24. okt. á s.l. ári var útbýtt hér í þessari hv. d. stjfrv. um breyt. á áfengisl. Frv. var afgr. til 2. umr. og hv. allshn. 1. nóv. Síðan eru liðnar um það bil 19 vikur, og það bólar ekkert á frv. Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. dómsmrh., sem mælti fyrir þessu frv., hvort það sé í samráði við hann eða hæstv. ríkisstj., að málinu virðist ekki hafa verið hreyft, en sé svo ekki, hvort hæstv. ráðh. telji ekki ástæðu til að ýta við n. og þoka frv. áfram, þar sem nú virðist ekki vera eftir nema mjög skammur tími af þinghaldinu.