14.03.1967
Neðri deild: 54. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í C-deild Alþingistíðinda. (1700)
10. mál, áfengislög
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Það er ekki í samráði við mig eða ríkisstj., að málinu hefur ekki verið hreyft. Þvert á móti hef ég átt tal um það við formann allshn., sem hefur haft málið til meðferðar, hvort það mundi ekki fara að koma frá n., og seinast tjáði hann mér, að n. væri um það bil að afgr. málið, svo að það hlýtur að koma hvaða dag sem er úr þessu til 2. umr.