25.10.1966
Neðri deild: 7. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í C-deild Alþingistíðinda. (1712)

11. mál, lax- og silungsveiði

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins undirstrika það, sem fram kom í ræðu hæstv. landbrh. hér áðan, að ég gerði aths. við 9. gr. þessa frv., þegar það var lagt hér fram á síðasta hv. Alþingi, og ég treysti hv. landbn. til þess að kynna sér þær aths., sem ég þar gerði, og reyna að koma málum fyrir á betri veg en gert er í frv. Ég mun því ekki á þessu stigi málsins fara að endurtaka það, sem ég sagði hér, þegar frv. lá fyrir í fyrra, heldur aðeins minna á það og treysti hv. n. til að taka þær aths. til greina og reyna að leiðrétta málið frá því, sem það nú er.