13.12.1966
Neðri deild: 27. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í B-deild Alþingistíðinda. (188)

88. mál, Framleiðnisjóður landbúnaðarins

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég vil enn taka það fram, að ég tel þá túlkun, sem þessir tveir mætu lögfræðingar, sem ég vitnaði til áðan, hafa skýrt mér frá, tel hana rétta. En vegna þess að hér virðast vera skiptar skoðanir og sjálfsagt er að gera þetta þannig úr garði, að það verði ekki vefengt, hef ég skrifað hér brtt. við 3. gr., þar sem segir: „Á eftir orðunum „úr sjóðnum á ári hverju“ í 1. mgr. komi: eftir 1966.“ Ég vil, herra forseti, mælast til, að þessi till. verði borin upp.