18.04.1967
Sameinað þing: 37. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í D-deild Alþingistíðinda. (2214)

177. mál, ellefu hundruð ára afmæli byggðar á Íslandi

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Ég vil bara taka það fram, að ég heyrði bæði ræðu hæstv. forsrh. og hv. 3. þm. Norðurl. e., þurfti því engan að láta flytja mér frásögn af því. Ég endurtek það, að það var um útúrsnúning að ræða í báðum þessum ræðum, og vitna til þess, að sagan um víkingaskipið, sem hæstv. forsrh. vék að, var útúrsnúningur út úr nál. fjvn.