08.03.1967
Sameinað þing: 28. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 581 í D-deild Alþingistíðinda. (2741)

214. mál, skólakostnaðarlög

Fyrirspyrjandi (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. svar hans. Það fullnægir alveg þeirri fsp., sem ég hef lagt fram, og ég þakka hæstv. ráðh. og vænti þess þá, að þetta frv., ef okkur lízt svo á hér í þinginu, að það sé til bóta, að það megi ná fram að ganga, áður en þingi lýkur.