13.12.1966
Neðri deild: 27. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í B-deild Alþingistíðinda. (323)

74. mál, verðstöðvun

Frsm. meiri hl. (Davíð Ólafsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft til athugunar þá skrifl. brtt., sem hv. 5. þm. Vestf. bar fram hér í gærkvöld, en hefur ekki lokið athugun sinni á því máli. Ég vildi mega fara fram á það þess vegna, að fundi verði frestað nú um sinn, svo að n. gefist tækifæri til að athuga málið til hlítar.