03.11.1966
Efri deild: 11. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (43)

34. mál, almannatryggingar

Frsm. (Auður Auðuns):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur haft til athugunar þetta frv., sem flutt er að tilmælum samninganefndar trygginganna við læknasamtökin, og er í grg., sem frv. fylgdi frá samninganefndinni, gerð grein fyrir efni þess og ástæðu til þess, að n. óskaði þess, að frv. væri flutt. Eins og fram kemur í nál. á þskj. 49, leggur n. til, að frv. verði samþ., og eins og þar einnig kemur fram, voru tveir nm., þeir hv. 8. landsk, og hv. 4. þm. Vestf., fjarstaddir, þegar málið var afgreitt í nefndinni.