09.03.1967
Neðri deild: 51. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 677 í B-deild Alþingistíðinda. (485)
20. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Ég skal sannarlega liðsinna hæstv. forseta, það er mér kært, ég skal vera stuttorður.
Hv. þm. Axel Jónsson talaði hér áðan og mælti mjög á móti því, að fjölskyldubæturnar yrðu nú undanþegnar útsvari, það gæti bara orðið til þess, að það yrði að hækka á einhverjum öðrum, og hann segir frá því, sem mér þótti vænt um, að bæjarstjórn Kópavogs hefur undanþegið fjölskyldubætur, m.ö.o., það er bæjarstjórn Kópavogs, sem er sammála mér um, að það eigi að undanþiggja fjölskyldubætur. Þetta hafði ég gaman af að heyra. Hann mun eiga sæti í bæjarstjórn Kópavogs, náttúrlega hefur hann ekki samþ. þessa ráðstöfun, en þetta kalla ég til fyrirmyndar hjá þeim í Kópavogi. (Gripið fram í.) Já, það getur átt sér stað, ef fjölskyldubætur eru undanþegnar útsvari, að það hækki á einhverjum öðrum. (Gripið fram í) Það er alveg voðalegt, að barnamaðurinn skuli kannske fá eitthvað ofurlítið lækkað útsvarið sitt, en hækki á einhverjum öðrum. Það er von, að þeir leggi áherzlu á að koma í veg fyrir þetta, þeir sem hér hafa talað. — Nei, ég teldi það til sóma hverjum sem gerði þetta. Þó að það kynni að hækka hjá einhverjum öðrum, þá eru þessir menn fyrst og fremst verðugir þess, að það séu lækkuð á þeim útsvörin.
Þá talaði hér hv. 3. þm. Sunnl. og sagði, að það sé 12 þús. kr. frádráttur fyrir hvert barn. Ég hélt, að ég vissi það rétt, að það væru ekki neinar 12 þús. kr. Ég veit ekki betur en frádrátturinn til útsvars á hvert barn sé 5 þús. kr. plús 121/2% s.l. ár. Það er til skatts, sem þessi 12 þús. kr. frádráttur er, en ekki til útsvars. Við erum ekkert að ræða hérna um tekjuskatt, heldur um útsvarsálagningu. Ég er. nú eiginlega alveg hissa, að fyrrverandi bæjarstjóri skuli fara með svona vitleysu. Umr. frestað.