06.12.1966
Neðri deild: 22. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í B-deild Alþingistíðinda. (51)

34. mál, almannatryggingar

Frsm. (Guðlaugur Gíslason):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir á þskj. 35 um breyt. á l. um almannatryggingar, er komið hingað frá hv. Ed., og n. sú, sem þar hafði málið til meðferðar, lagði einróma til, að það yrði samþ. óbreytt.

Heilbr.- og félmn, þessarar d. hefur haft málið til athugunar, og leggur n. einnig til, að það verði samþ. óbreytt.