20.03.1967
Neðri deild: 56. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 918 í B-deild Alþingistíðinda. (596)

137. mál, Búreikningastofa landbúnaðarins

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Þetta atriði, sem hv. þm. vekur athygli á, var réttmætt, þegar frv. var lagt fram, en því var veitt athygli í hv. Ed. og gerð breyting á frv. þar, þar sem var flutt brtt. á þskj. 350 frá hv. landbn. Ed., og þar er það tekið fram, að úr gildi verði felld lög nr. 12 1. febr. 1936, um búreikningaskrifstofu ríkisins. En það er þessi till., sem hv. þm. hefur ekki tekið eftir, sem var samþ. í Ed.