11.04.1967
Efri deild: 62. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (629)

7. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Friðjón Skarphéðinsson):

Herra forseti. Þetta frv. er komið hingað til hv. Ed. öðru sinni frá Nd., og nú með þeirri breyt. einni, að einum umsækjanda hefur verið bætt inn í 1. gr. frv., þannig, að þar eru nú 54 umsækjendur, sem frv. gerir ráð fyrir, að öðlist ríkisborgararétt.

Allshn. hefur athugað þessa breyt., sem orðið hefur á frv., síðan það var hér síðast, og að þeirri athugun lokinni, leggur hún til, að frv. verði samþ. í þeirri mynd, sem það nú er. Tveir nm. voru fjarverandi, þegar n. afgreiddi málið, þeir hv. 8. þm. Reykv. og hv. 1. þm. Vestf.