13.12.1966
Neðri deild: 28. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (68)
2. mál, síldarflutningaskip
Frsm. (Jónas G. Rafnar):
Herra forseti. Þegar mál þetta var til meðferðar í hv. fjhn., var óskað eftir því í n. að beina nokkrum fsp. til stjórnar Síldarverksmiðja ríkisins. N. fékk síðan svar frá stjórn SR, sem er mjög stutt og ég vil leyfa mér að lesa hér upp, með leyfi hæstv. forseta:
„Við höfum móttekið bréf yðar, dags. 22. nóv. s.l., þar sem þér óskið eftir, að við gefum upplýsingar um eftirtalin atriði varðandi kaup og lántöku á síldarflutningaskipi SR. Spurt er: Hefur lánið allt verið tekið? Svar: Tekið hefur verið lán vegna kaupanna að upphæð 1 millj. 50 þús. dollarar, þ.e.a.s. 45 097 500 ísl. kr. Spurt er: Hvar var lánið tekið? Svar: Lánið var tekið hjá Charterhouse Japlet & Thomason Ltd., London. Spurt er: Hvert var kostnaðarverð skipsins, og hve mikið lögðu Síldarverksmiðjur ríkisins fram af því? Svar: Kaupverð skipsins var 6 millj. norskar kr., þ.e.a.s. 36130 800 ísl. kr. Þar við bætast ýmsar birgðir, varahlutir o.fl. 1 millj. 360 þús. ísl. kr. Loks varð að útbúa skipið losunar- og löndunartækjum og gera ýmsar breytingar, er kostuðu 15 millj. 500 þús. ísl. kr. Kostnaðarverð skipsins er því 53190 800 ísl. kr. Síldarverksmiðjur ríkisins hafa því lagt fram 8 millj. 93 þús. kr. Spurt var: Hve mikið af láninu hefur farið til endurbóta á löndunartækjum: Svarið: Ekkert. Síldarverksmiðjur ríkisins munu leita eftir láni til viðbótar fyrri lántöku, sem þegar hefur verið framkvæmd, samkv. því sem lántökuheimildin leyfir.
F.h. Síldarverksmiðja ríkisins,
Sigurður Jónsson.“
Fjhn. hefur athugað þetta frv. og leggur einróma til, að það verði samþykkt óbreytt.