27.02.1967
Neðri deild: 46. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 998 í B-deild Alþingistíðinda. (735)

94. mál, jarðeignasjóður ríkisins

Frsm (Jónas Pétursson):

Herra forseti. Hæstv. landbrh. hefur nú tekið það fram, sem ég ætlaði að segja, að mér er einmitt kunnugt um það, að þetta mál er til athugunar á búnaðarþingi. Eins og okkur öllum hv. þm. er ljóst, eru hér 6 umræður og þetta er aðeins 2. umr. í fyrri d. Ég sé ekki annað en það sé nægt tækifæri til þess, að þær aths., sem það kynni að hafa fram að færa, geti legið fyrir, áður en málið verður endanlega afgreitt frá þinginu.