12.04.1967
Sameinað þing: 34. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1157 í B-deild Alþingistíðinda. (978)

110. mál, fjáraukalög 1965

Frsm. (Birgir Finnsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur yfirfarið frv. til fjáraukal. fyrir árið 1965. Frv. er samið skv. till. yfirskoðunarmanna ríkisreikninga á sama hátt og venja hefur verið til. N. hefur borið tölurnar í frv. saman við ríkisreikninginn og ekkert fundið athugavert. Leggur hún til, að frv. verði samþ. óbreytt.