09.04.1968
Neðri deild: 95. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1186 í B-deild Alþingistíðinda. (1016)

82. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Í sambandi við þessa fsp. vil ég aðeins segja það, að ég mun gera ráðstafanir til að dagblöðunum verði send grg. varðandi kaupin hjá Póst- og símahúsinu í þessa svo nefndu glugga, sem rætt eru um í Alþýðublaðsgreininni í dag, og geta þá hv. alþm. gert sér grein fyrir því, hvernig í þessu máli liggur.