16.04.1968
Neðri deild: 98. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1427 í B-deild Alþingistíðinda. (1306)

187. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar 1968

Frsm. meiri hl. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d. hefur haft frv. þetta til athugunar á tveimur fundum. Á fundum þessum mættu þeir Jónas Haralz, forstöðumaður Efnahagsstofnunarinnar, og dr. Gísli Blöndal, hagsýslustjóri ríkisins. Veittu þeir fundarmönnum þær upplýsingar, sem þeir báðu um, og gerðu grein fyrir einstökum atriðum frv. eftir því, sem óskað var af hv. nm. Eins og fram kemur á þskj. 595 og 598, hefur fjhn. ekki orðið sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl. n. leggur til á þskj. 595, að frv. verði samþ. óbreytt til 3. umr.