06.11.1967
Sameinað þing: 9. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2191 í B-deild Alþingistíðinda. (1997)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Jón Skaftason, 2. þm. Reykn., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda, m. a. í opinberum erindum, og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjaneskjördæmi, Valtýr Guðjónsson útibússtjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf, útgefið af yfirkjörstjórn Reykjaneskjördæmis handa Valtý Guðjónssyni bankastjóra, Keflavík, liggur hér fyrir. Vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. —[Fundarhlé.]