20.11.1967
Sameinað þing: 13. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2194 í B-deild Alþingistíðinda. (2005)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Auður Auðuns):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Ásgeirs Péturssonar, varaþm. Sjálfstfl. í Vesturlandskjördæmi, og Axels Jónssonar, varaþm. Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi. N. hefur ekkert fundið athugavert við kjörbréfin, og hún leggur til, að kjörbréfin verði samþ. og kosning þessara tveggja varaþm. tekin gild.