29.01.1968
Neðri deild: 55. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2196 í B-deild Alþingistíðinda. (2013)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 27. jan. 1968.

Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna sérstakra anna heima fyrir, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varam. Sjálfstfl. í Vesturlandskjördæmi, Ásgeir Pétursson sýslumaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Friðjón Þórðarson,

4. þm. Vesturl.

Til forseta neðri deildar.“

Kjörbréf Ásgeirs Péturssonar hefur áður verið rannsakað, og býð ég hann velkominn til starfa í hv. þd.