01.02.1968
Sameinað þing: 33. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2197 í B-deild Alþingistíðinda. (2017)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 31. jan. 1968.

Birgir Kjaran, 7. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar eð ég er á förum til útlanda sem fararstjóri íslenzku þátttakendanna í vetrarólympíuleikunum í Grenoble og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að þar sem 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Geir Hallgrímsson borgarstjóri, dvelst erlendis, taki 2. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Þorsteinn Gíslason skipstjóri, sæti mitt á Alþingi, meðan ég verð fjarverandi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf til handa Þorsteini Gíslasyni liggur hér fyrir, og vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]