05.03.1968
Sameinað þing: 42. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2206 í B-deild Alþingistíðinda. (2046)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 4. marz 1968.

Karl Guðjónsson, 6. þm. Sunnl., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna sérstakra anna, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að vegna forfalla 1. og 2. varamanns taki 3. varamaður Alþb. í Suðurlandskjördæmi, Jónas Magnússon bóndi, sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Jónas G. Rafnar,

forseti efri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Þessu bréfi fylgir svo hljóðandi símskeyti: „Sökum annríkis get ég ekki tekið sæti á Alþ. og óska eftir, að næsti varamaður taki sæti í minn stað.

Björgvin Salómonsson.“

Og enn fremur svo hljóðandi símskeyti:

„Með því að ég get ekki sökum annríkis tekið sæti á Alþingi, mælist ég til þess, að næsti varamaður Alþb. taki sæti mitt.

Jóhannes Helgason, Hvammi.“

Og loks fylgir bréfinu kjörbréf Jónasar Magnússonar bónda, Strandarhöfði, Vestur-Landeyjum, útgefið af yfirkjörstjórn Suðurlandskjördæmis. Rannsókn þarf að fara fram á kjörbréfi varamanns, og vil ég biðja kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]