06.03.1968
Sameinað þing: 43. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2207 í B-deild Alþingistíðinda. (2049)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 5. marz 1968.

Jón Kjartansson, 1. varaþm. Norðurl. v., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna sérstakra anna leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 2. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Magnús H. Gíslason bóndi, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Rannsókn hefur áður farið fram á kjörbréfi Magnúsar H. Gíslasonar, og tekur hann því nú sæti á þinginu sem l. þm. Norðurl. v. Leyfi ég mér að bjóða hann velkominn til þingstarfa á ný.