13.03.1968
Sameinað þing: 44. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2207 í B-deild Alþingistíðinda. (2051)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 12. marz 1968.

Benedikt Gröndal, 5. þm. Vesturl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Vesturlandskjördæmi, Pétur Pétursson forstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með

ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Matthías Á. Mathiesen,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf Péturs Péturssonar forstjóra, gefið út af yfirkjörstjórn Vesturlandskjördæmis, liggur hér fyrir: Þar sem Pétur Pétursson hefur ekki áður átt sæti á þingi á þessu kjörtímabili, þarf að fara fram rannsókn á kjörbréfinu, og leyfi ég mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]