04.04.1968
Neðri deild: 90. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2209 í B-deild Alþingistíðinda. (2058)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
forseti (SB):
Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 4. apríl 1968.
Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna anna, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Eyjólfur Konráð Jónsson ritstjóri, taki sæti á Alþingi vegna veikindaforfalla aðalmanns.
Ragnar Jónsson,
11. landsk. varaþm.
Til forseta neðri deildar.“
Kjörbréf Eyjólfs Konráðs Jónssonar ritstjóra hefur áður verið rannsakað, og tekur hann því nú sæti á Alþ. Býð ég hann velkominn til þingstarfa að nýju.