16.04.1968
Sameinað þing: 51. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2210 í B-deild Alþingistíðinda. (2060)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Forseti (BF):
Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 16. apríl 1968.
Mér hefur borizt eftirfarandi bréf frá framkvæmdastjóra Sjálfstfl:
„Samkvæmt beiðni Pálma Jónssonar, 4. þm. Norðurl. v., sem nú er forfallaður vegna veikinda, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að varamaður hans, Óskar Levy bóndi, taki á meðan sæti hans á Alþingi.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt, með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Sigurður Bjarnason,
forseti neðri deildar.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“ — [Fundarhlé.]