09.12.1967
Neðri deild: 36. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í B-deild Alþingistíðinda. (207)
72. mál, ráðstafanir vegna landbúnaðarins í sambandi við breyting á gengi íslenskrar krónu
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr., þó að fullkomin ástæða væri til að ræða um þau vinnubrögð, sem hæstv. ríkisstj. hefur í sambandi við þau mál, sem hún leggur fyrir á hv. Alþ. Aðalefnið í framsöguræðum hæstv. ráðh. er farið að verða það, að þingið megi ekki hafa neinn tíma til þess að fjalla um málin.
En ástæðan til þess, að ég kvaddi mér hljóðs, var ekki sú að ræða þetta sérstaklega, þó að ég telji, að það verði að fara að taka sér tíma til þeirrar umr., heldur hitt, að ég sé í 2. gr. frv., að landbrh. á að ráðstafa því fé, sem kemur samkv. l. um gengisbreytingar og af þeim landbúnaðarvörum, sem út eru fluttar. Í tilefni af þessu vil ég leyfa mér að spyrja: Verður hliðstætt ákvæði í frv. um sjávarútveg? Er ætlazt til þess, að sjútvmrh. fái þar einn að ráða, hvernig með það verði farið? Mér finnst í raun og veru furðulegt að láta einn ráðh. fá svo mikið vald, að hann eigi að ráðstafa þessu, en vil, áður en ég ræði það nokkuð, fá upplýsingar um, hvort hliðstætt ákvæði verður sett t.d. í sambandi við sjávarútveginn.