19.12.1967
Efri deild: 40. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2223 í B-deild Alþingistíðinda. (2114)
Þingfrestun og þinghlé
forseti (JR):
Væntanlega verður þetta síðasti fundur hv. Ed. fyrir þinghlé. Ég vil því óska öllum hv. þdm. og vandamönnum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og jafnframt öllu starfsliði Alþingis. Utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og vona, að við hittumst hér öll heil að jólaleyfi liðnu.