19.12.1967
Neðri deild: 48. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2223 í B-deild Alþingistíðinda. (2117)

Þingfrestun og þinghlé

forseti (SB):

Þar sem þetta verður væntanlega síðasti fundur hv. þd. fyrir jól, leyfi ég mér að þakka öllum hv. þdm. ánægjulega og góða samvinnu við mig sem forseta, það sem af er þessu þingi. Ég leyfi mér jafnframt að óska hv. þm. gleðilegra jóla og nýárs og þeirra fjölskyldum. Utanbæjarþm. óska ég góðrar heimferðar og heimkomu, og læt að lokum í ljós þá ósk, að vér megum allir heilir hittast á þingi á nýju ári.