20.04.1968
Efri deild: 100. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2226 í B-deild Alþingistíðinda. (2128)

Starfslok deilda

forseti (JR):

Nú, þegar fundum d. lýkur, vil ég nota tækifærið til að þakka ykkur, hv. þm. öllum fyrir samveruna á þessu þingi, sem nú er að ljúka. samveruna og ánægjulega samvinnu. Ég vil þakka skrifurum deildarinnar fyrir stundvísi og ágætt starf. Þá þakka ég varaforsetum fyrir þá aðstoð, sem þeir hafa veitt mér sem forseta. Skrifstofustjóra Alþingis færi ég beztu þakkir fyrir ágæta samvinnu og einnig fulltrúum hans og öðru starfsliði Alþingis.

Nú, þegar leiðir skiljast, óska ég öllum utanbæjarþingmönnum góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu. Ykkur öllum og fjölskyldum ykkar óska ég gleðilegs og ánægjuríks sumars, óska að síðustu, að við munum öll hittast heil á komandi hausti, er þing hefst að nýju.