19.04.1968
Neðri deild: 102. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2226 í B-deild Alþingistíðinda. (2132)

Starfslok deilda

Lúðvík Jósefsson:

Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir og hlý orð í okkar garð. Ég vil jafnframt þakka honum fyrir gott samstarf við okkur þm. og góða og röggsamlega fundarstjórn. Þá vil ég óska hæstv. forseta og fjölskyldu hans gleðilegs og góðs sumars og bið hv. alþm. að taka undir þessi orð mín til forseta með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]