20.04.1968
Sameinað þing: 58. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2232 í B-deild Alþingistíðinda. (2140)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Ásgeir Ásgeirsson):

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Alþingi, 88. löggjafarþing, hefur lokið störfum. Mun ég því slíta Alþingi í dag, laugardaginn 20. apríl 1968.

Þetta forsetabréf er gert í Reykjavík, 20. apríl 1968.

Ásgeir Ásgeirsson.

Bjarni Benediktsson.

Samkvæmt þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið. — Ég óska þm. velfarnaðar, þjóðinni allra heilla og bið alþm. að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.