27.02.1968
Neðri deild: 67. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 204 í C-deild Alþingistíðinda. (2241)
48. mál, loðdýrarækt
Frsm. minni hl. (Jónas Pétursson) :
Herra forseti. Það er ekki ástæða til þess að lengja þessar umr. mikið, en mér datt í hug út af því, sem hv. síðasti ræðumaður fór að tala um tilfinningamálið, — það var hér fyrir nokkrum árum, sem við hv. þm. Benedikt Gröndal áttum einmitt orðaskipti út af þessu sama, og ég man það, að ég sagði þá við hv. þm., að það væri fjarri því, að ég teldi ekki tilfinningu geta verið rök, og ég vil taka undir það enn. En ég vil jafnframt benda á það og leggja á það áherzlu, að ég fæ ekki skilið, hvernig sú tilfinning að hafa mikla andúð á villiminknum geti verið rök í þessu máli. Og mér finnst einmitt það vera eitt af því, sem hæst ber í umr. um þetta. Það er einmitt villiminkurinn. Og ég fæ ekki annað skilið en það sé einmitt vegna þessarar tilfinningar, sem menn hafa, þessarar andúðar á villiminknum, sem menn tæpast geta hugsað sér, að hér sé tekið upp eldi á mink í búum. Ég verð að játa, að þetta samrýmist ekki mínum hugmyndum, þrátt fyrir þá almennu skoðun, að ég meti einmitt sérstaklega mikils tilfinningar.
Ég kunni ekki alveg vel við það, þegar hv. þm. komst þannig að orði, að ég hefði talið, að það mundi vera gott til dundurs á hverri höfn að fást við minkaeldi. Það má nú e.t.v. hafa það orð um margs konar atvinnurekstur, sem menn hafa með höndum, að það megi kalla það dundur, og út af fyrir sig getur það verið mikils virði í lífinu. En ég vildi sem sagt samt sem áður í þessu efni mótmæla þessu orðalagi, að nota það um minkaeldið, og ég vil jafnframt leggja áherzlu á það, sem ég þá gat um, að ég tel einmitt, – og það eru í mínum huga mikilsverð rök fyrir því, að við göngum ótrauðir að því að stofna til minkaeldis hér, — það er einmitt þetta, að það er líklegt til þess að verða mjög til stuðnings hinni strjálu byggð víðs vegar um landið.
Hv. þm. minntist hér á niðursuðu og hann minntist hér á fiskiræktina. Ég var að hugsa um, einmitt þegar ég var að hugleiða, hvernig ég ætti að taka þetta mál, að koma einmitt að fiskiræktinni 3 sambandi við minkaeldið. En ég vil aðeins taka það fram, að það er ákaflega mikill misskilningur, ef menn halda, að það sé eitthvað verið að velja hér á milli. Eins og hv. þm. vita, liggur hér fyrir hv. Alþ. einmitt till. um fiskirækt, sem ég er flm. að, og mér þykir einmitt gott að geta notað tækifærið til að leggja áherzlu á það, að hvorar tveggja þessar atvinnugreinar, minkaeldi og fiskirækt, eru ofarlega í mínum huga sem stórfelldur stuðningur fyrir byggðir hér í framtíðinni.
Þá var hv. þm. að tala um, að það vantaði áætlanir og þetta frv., ef að lögum yrði, væri illa úr garði gert og illa undirbúið. Ég vil bara benda á það, að mér sýnist það liggja alveg ljóst fyrir, að það leggur enginn maður út í að koma hér á minkaeldi öðruvísi en að gera sér grein fyrir því, hvort það muni vera arðvænlegt og á hvern hátt það muni vera arðvænlegast. Í þessu tel ég vera svo mikla tryggingu fyrir því, að það verði sem fæst um mistök, þegar út í þetta er lagt, að ég tel hana alveg fullnægjandi.
Ég skal svo ekki fjölyrða meira.