17.04.1968
Sameinað þing: 52. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í D-deild Alþingistíðinda. (2706)
79. mál, breytt skipan lögreglumála í Reykjavík
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Ég þakka hv. frsm. og öðrum fulltrúum allshn. fyrir góða samvinnu í þessu máll. Um till. er það að segja, að mér er ekki kunnugt um, að hún hafi sætt andmælum síðan hún kom fram. Um hana virðist því vera gott samkomulag allra viðkomandi aðila. Er þess því að vænta, að hún hljóti samþykki hins háa Alþ.