20.03.1968
Sameinað þing: 46. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í D-deild Alþingistíðinda. (2737)
148. mál, auknar sjúkratryggingar
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Út af ræðu hæstv. heilbrmrh. vil ég geta þess, að í frv., sem ég ræddi um og var samið af þeirri n., sem tryggingaráð skipaði, var ekki svo ráð fyrir gert, að ríkið tæki á sig allan þann kostnað, sem af því hlytist, síður en svo. Það voru sjúkrasamlög landsins, sem gátu borið þarna kostnað allt upp í þrefaldan á við það, sem ríkinu var ætlað að greiða, og ég tel, að þetta frv. hafi á engan hátt verið þannig úr garði gert, að það væri ríkinu um megn að standa við þær skuldbindingar, sem það fól í sér, því að kerfið er það sama, en sjúkrasamlög landsins áttu að bera sinn hlusta ekki síður en ríkið sjálft. Og auk þess voru það sérfræðingar, sem áttu að dæma um það, hverjir áttu að njóta styrkja í þessu sambandi, og ég ætla, að það út af fyrir sig geri það að verkum, að ríkið hafi sitt aðhald í þeim efnum.