09.04.1968
Neðri deild: 94. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í D-deild Alþingistíðinda. (2996)
115. mál, styrjöldin í Víetnam
Forsrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég skal ekki fara að þræta efnislega um það mál. sem hér liggur fyrir. Ég kemst þó ekki hjá því að láta uppi, að því miður er það miklu alvarlegra mál en svo, að einföld samþykkt okkar hér, hvort heldur í Nd. eða Sþ., muni þar ráða efnisúrslitum. En það er mál fyrir sig. Það breytir ekki því, að eðlilegt er, að rétt íslenzk stjórnvöld taki um það ákvörðun, hvernig okkar umboðsmenn eigi að snúast í þessum vanda á alþjóðavettvangi. Og hv. síðasti ræðumaður er því vel kunnugur, sem raunar sá þm. gat réttilega um, sem hér gerði fyrstur aths. utan dagskrár, að ég tók undir það á fundi, sem þessir hv. þm. áttu með mér, ásamt öðrum, að eftir atvikum gæti ég fallizt á till. einmitt byggða á þessum orsökum um málið Það er svo enn annað, að sú till. er í meginatriðum ólík þeirri till., sem hér var gerð till. um fyrr á þinginu, og mun það upplýsast, ef efni málsins verður rætt, sem ég er síður en svo á móti. Ég get ekki annað en fagnað því, að sjálfir tillögumennirnir skyldu vera því samþykkir að breyta sinni till. í meginefnum. Það er mál fyrir sig. Hv. þm. lætur að vísu svo sem ég hafi ráðið ákvörðun allshn. eða ákvörðun utanrmn. Ég var ekki á fundi í utanrmn. og ekki á allshn. fundum, þegar um þetta mál hefur verið fjallað. Hitt veit hv. þm., að ég kom til hans nú þegar fyrir viku og sagði við hann, að vegna hins breytta viðhorfs, sem komið hefði í ljós eftir yfirlýsingu Bandaríkjaforseta, væri það ljóst, að till. þyrfti að breyta, og ég skoraði á hv. þm. að koma með þær breytingar, sem augljóslega þyrfti að gera, til þess að við gætum haldið áfram viðleitni um að afgreiða málið sameiginlega. Hv. þm. hefur ekki sýnt nokkra viðleitni í þá átt, og hann kemur hér upp og segir, að atvik hafi ekki breytzt, alveg gagnstætt því, sem hv. 1. flm, till. sagði í sinni aths. Hann lagði á það áherzlu, að atvik hefðu mjög breytzt, og um það getur enginn deilt, og till. á ekki lengur að efni eða orðalagi við það ástand, sem nú hefur skapazt. Það er þess vegna eðlilegt, að hv. tillögumenn séu um það spurðir og til þess hvattir, eins og ég gerði við þennan hv. þm. fyrir viku: Komið þið með þær breytingar, sem þið teljið nú eðlilegar, þá skulum við halda áfram efnislegri athugun málsins. Það stendur fyrst og fremst upp á þennan hv. þm. Það er svo í samræmi við hans önnur heilindi, sem allir þm. þekkja, að hann skuli koma hingað og gera árás á mig fyrir, að ég hafi stöðvað málið.