10.10.1967
Sameinað þing: 0. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (3)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Aldursforseti (SE):
Alþingi hefur borizt svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 10. okt. 1967.
Þar sem frú Auður Auðuns, 2. þm. Reykv., er nú fulltrúi Íslands á þingi Hinna sameinuðu þjóða og getur því ekki sinnt þingstörfum næstu vikur, leyfi ég mér samkv. beiðni hennar að biðja um fjarvistarleyfi fyrir hana og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi, Geir Hallgrímsson borgarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru hennar.
Bjarni Benediktsson,
formaður þingflokks Sjálfstfl.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Þá hefur Alþingi einnig borizt svo hljóðandi bréf:
„New York, 7. okt. 1967. Vegna dvalar erlendis næstu vikur í opinberum erindum leyfi ég mér að æskja þess, að varamaður minn taki sæti mitt á Alþingi á meðan.
Þórarinn Þórarinsson.
Til forseta sameinaðs þings.“