25.10.1967
Sameinað þing: 7. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í D-deild Alþingistíðinda. (3036)
10. mál, breytingar á nýju vísitölunni
Fyrirspyrjandi (Magnús Kjartansson):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. fjmrh. fyrir svörin. Eins og hann sagði, er hér um að ræða ákaflega flókið mál, en einnig ákaflega mikilvægt, og ég hef ekki aðstöðu til þess að leggja neitt út af þeim svörum, sem hér hafa komið frá hæstv. ráðh. að þessu sinni. En ég vil vænta þess, að ef það kemur í ljós, að maður hafi hug á að fá frekari vitneskju, liggi hún eftirleiðis á lausu.