08.11.1967
Sameinað þing: 10. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í D-deild Alþingistíðinda. (3067)

195. mál, rekstur Iceland Food Center í London

Fyrirspyrjandi (Gils Guðmundsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. landbrh. fyrir svör við fsp. mínum, sem ég tel eftir atvikum fullnægjandi. Ég tel, að ýmsar fróðlegar upplýsingar hafi komið fram í sambandi við þessi svör, en sé ekki ástæðu til að ræða málið frekar á þessu stigi