15.12.1967
Neðri deild: 41. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í B-deild Alþingistíðinda. (319)

75. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hl. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d. hefur haft frv. þetta til athugunar, yfirfarið það og borið það saman. N. gat ekki orðið sammála um afgr. málsins, og eru því gefin út tvö nál.

Nál. meiri hl. n. er á þskj. 150, og mælir meiri hl. með því, að frv. verði samþ. óbreytt, en minni hl. n. hefur gefið út sérálit á þskj. 156.

Ég sé ekki ástæðu til þess að rekja efni þessa frv. sérstaklega. Það var bæði gert í framsöguræðu hæstv. ráðh., og svo er það kunnugt úr umræðum hér í hv. d. í sambandi við annað frv., sem hér hafði verið á ferðinni áður. Meiri hl. n. leggur því til, að frv. verði samþ. óbreytt.