19.12.1967
Sameinað þing: 25. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 616 í B-deild Alþingistíðinda. (487)
1. mál, fjárlög 1968
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég veit, að það er öllu erfiðara fyrir hv. þm., sem hér var að ljúka máli sínu, að flytja brtt. við lið, sem ekki finnst á fjárlagafrv., heldur en mig, sem flyt brtt. við hans brtt. En hins vegar hef ég haft ástæðu til þess að standa hér upp vegna þessarar brtt. minnar. Ég ætla ekki að fara út í það að ræða um mat mitt á þeim tveim listamönnum, sem koma fram í okkar brtt. Hv. fyrri ræðumaður gat um sitt mat á Þórbergi Þórðarsyni, sem ég vil sízt draga úr. Hins vegar tel ég fulla ástæðu til þess, þegar svo er komið, að brtt. er flutt við þessa gr. fjárl., sem væntanlega verður til, áður en þau verða afgreidd, að nafn Guðmundar Gíslasonar Hagalín komi einnig fram, og því hef ég leyft mér að flytja þá brtt., sem kemur fram á þskj. 207 undir II. lið. Ég vil ekki fara út í frekari umr. um þetta mál að þessu sinni nema ástæða gefist til, en brtt. er fyrir hendi og það sýnir hv. þm., hvaða mat ég hef á þessum hv. listamanni.
En út af þeim orðum, sem síðasti ræðumaður lét falla um brtt. á þskj. 199 frá hv. 4. þm. Austf., brtt. nr. VI, vil ég taka það fram nú þegar, að að þessu máli er unnið. Fyrir nokkrum vikum skrifaði hæstv. dómsmrh., sem jafnframt fer með heilbrigðismál, samtökum sjómanna og óskaði eftir því að þau tilnefndu menn í n., sem ynni með heilbrmrn., m.a. til þess að ráða fram úr vandamálinu um læknisaðstoð á fjarlægum miðum. Við skulum allir gera okkur grein fyrir því, að þetta er mikið vandamál, og ég vænti þess einnig, að þegar við komumst að einhverri niðurstöðu um það, hvernig við ráðum fram úr þessu, verði fé fyrir hendi til framkvæmdanna. Og það get ég sagt þessum hv. þm., sem ber sjómenn mjög fyrir brjósti, bæði fyrr og síðar, og jafnframt aðra, sem við útgerðarmál fást, að ég vænti þess, að það verði ekki féð, sem stendur á, heldur framkvæmd málsins. Það stóð ekki á fénu á s.l. sumri, kannske þó að nokkru leyti, en hins vegar veit ég það, að með samstöðu þeirra aðila, sem til hafa verið kvaddir að ráða fram úr þessum málum, verður fjárskortur ekki til fyrirstöðu, þegar að því kemur að leita úrbóta, ekki aðeins í sambandi við læknisþjónustu, heldur mörg önnur mál, sem upp kunna að koma í sambandi við þjónustu fyrir sjómennina og útgerðina sjálfa í heild, og ég mun, þegar til atkvgr. kemur um þennan lið, greiða atkv. með slíkri fjárveitingu í trausti þess, að úr þessum vandamálum verði ráðið með atbeina þeirra manna, sem bezt hafa vit á.